Hér er mín skoðun sett fram, stundum samhengislaus, varist allar getgátur í texta.
Gamla síðan
08.07.2010 14:20:55 / formannslif

Færi mig

        Leiðin að velgengni er ekki ljós, lykillinn að mistökum er að reyna að þóknast öllum.


Ágæti lesandi.

Um tíma beini ég skrifum mínum á þessa síðu: http://helgadogg.blogcentral.is/

Ekki er ljóst hvenær skrif hefjast að nýju hér.

Góð kveðja,
Helga Dögg
M.Ed og sjúkraliði.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2010 19:22:49 / formannslif

Kynjafræði

Eftir minni meiningu þá er seiglan okkar helsti bjargvættur, og þá þarf ekki að kvíða ef hún er óbilug (Jón forseti d. 1879). 

Kynjahlutverk er og hefur verið til umræðu í þjóðfélaginu. Margar fullyrðingar hafa litið dagsins ljós um þau hlutverk sem henta hvoru kyni fyrir sig. Hér koma nokkra fullyrðingar ; 

·  Strákar ættu að mennta sig meira en stelpur.

·   Konur ættu ekki að vinna á næturvöktum.

·   Eiginmenn ættu að hafa hærri laun en eiginkonur þeirra

·   Konur eiga að bera ábyrgð á heimilisstörfunum.

·  Karlar eru ekki hæfir til að sjá um ungabörn

·  Konur eru tilfinningaríkari en karlar.

·  Konur eru ekki góðar sem yfirmenn.

·  Karlar ættu aldrei að gráta.

·  Hjúkrun er kvennastarf.

·  Konur geta ekki unnið erfiða líkamlega vinnu.

· Karlar og konur ættu að deila ábyrgðinni á barnauppeldinu jafnt

      á milli sin. 

Kveðja,
Helga Dögg


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2010 16:57:01 / formannslif

Ný lög um heilbrigðisþjónustu

                  Hvað er anstæða tveggja? Einmanna ég, einmanna þú.

Í tímariti hjúkrunarfræðinga, Hjúkrun er að finna greinagerð framkvæmdastjórnar Fíh um lög um heilbrigðisþjónustu. Hér má lesa hana; http://hjukrun.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=7f6f5775-dfe4-4593-b092-398bd41c030d

Mörg og ólík sjónarhorn eru á málinu, meðal allra fagstétta. Sitt sýnist hverjum. Heyrði á ráðstefnu hér á Akureyri hjúkrunarfræðinga sem eru hlynntir slíkum breytingum. Málið er til að hafa skoðun á.

Góð kveðja,
Helga Dögg

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.07.2010 20:43:49 / formannslif

Bílalán

                                        Eins manns dauði annars brauð

Þá hefjast skrifin að nýju. Kannski stopulli en áður, kemur í ljós.

Gengistryggðu lánin valda uppnámi. Fólk kemur fram á sjónarsviðið og segir frá hvernig fyrirtækin hafa hirt af því bíla. Ekki nóg með það, þau útbúa reikninga og ekki er á hreinu hvort viðvikin séu framkvæmd. Einn góðu bloggari er með frásögn af slíku máli;
http://blog.eyjan.is/larahanna/

Kveðja,
Helga Dögg


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2010 16:51:58 / formannslif

Stökur

                Vegna sumarleyfis verður hlé á skrifum til mánaðamóta.

Stökur eftir Ragnar Björnsson.

Hæðir, lautir, engi, úr

auðnan, hlíðin, fossinn,

klæðir skrauti sumar svás,

sólarblíði kossinn.

Dóma grundar, aldrei ann

illu prettu tali.

Sóma stundar hvergi hann,

hallar réttu máli.

Vandra ró ei varast má,

Varúð þó menn beiti.

Mörg er Gróa málug þó

mannsorð þjófa Leit.

Sjúkraliði; http://markadssyn.is/dl/sjukralidi,%20loka%20utgafa.pdf

Kveðja,
Helga Dögg Sverrisdóttir,
M.Ed og B.Ed.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.06.2010 20:21:03 / formannslif

Verkalýðsrekendur

                                            Ekki er allt sem sýnist

Nú fara verkalýðsrekendur í hár saman. Þeim greinir á um hvort segja eigi upp opinberum starfsmönnum eður ei. Hvor um sig gætir hagsmuna sinna félagsmanna og geta með engu móti unað að betur gangi hjá hinum. Samstaða verkalýðsrekenda enduspeglast glöggt hér;   
 http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/06/10/asi_og_sfr_greinir_a_um_loford/

Ekki er á vísan að róa með forkólfa verkalýðsins. Margir hverjir eru eins og stjórnmálamenn, hugsa um sig og síðan lýðinn. Ef grannt er skoðað og menn ígrunda menn og málefni má koma auga á þessan vankanta. Opna þarf augun til að sjá þetta, það má líka velja að halla aftur augum og fljóta með. Það eru margir forkólfar innviklaðir í stjórnmálaflokka og verkalýðsmálin, segja svo að þetta tvennt sé órjúfanlegum böndum bundið.

Kveðja,
Helga Dögg Sverrisdóttir,
M.Ed, B.Ed og sjúkraliði.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2010 16:02:45 / formannslif

Vanvirðing

                                        Margur er knár þó hann sé smár

Vanvirðing við fólk með lágt menntunarstig. Að menn skuli láta svona nokkuð út úr sér til varnar eigin mistökum er lágkúra. Lesið; http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/06/09/gert_ad_greida_kululan/

Hvernig getur maðurinn notað þau rök, eða afsökun, að hann sé eingöngu grunnskólamenntaður fyrir eigin heimsku og verið stjórnarformaður fyrirtækis sem skuldar miljarða. Hvurslags, að bera þetta á borð fyrir okkur. Hugsa sér að þessi maður, Jakob Valgeir Flosason, skuli voga sér að bera litla grunnmenntun fyrir sig. Heimska og fégræðgi eru orð yfir gjörðir hans sem hann á að standa við. Þegar menn leika sér með peninga þá vitað þeir jafnframt að þeir geta líka tapað. Vogun vinnur vogun tapar.
 
Með kveðju,
Helga Dögg Sverrisdóttir,
M.Ed, B.Ed og sjúkraliði
.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2010 11:56:43 / formannslif

Allt eins og blómstrið eina

Sálmurinn er til minningar um Ásgerði sjúkraliða sem ég þekkti.

Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði, -
líf mannlegt endar skjótt.

Svo hleypur æskan unga
óvissa dauðans leið
sem aldur og ellin þunga,
allt rennur sama skeið.
Innsigli engir fengu
upp á lífsstunda bið,
en þann kost undir gengu
allir að skilja við.

Dauðinn má svo með sanni
samlíkjast, þykir mér,
slyngum þeim sláttumanni,
er slær allt, hvað fyrir er:
grösin og jurtir grænar,
glóandi blómstrið frítt,
reyr, stör sem rósir vænar
reiknar hann jafnfánýtt.

Lífið manns hratt fram hleypur,
hafandi enga bið,
í dauðans grimmar greipur, -
gröfin tekur þá við.
Allrar veraldar vegur
víkur að sama punkt,
fetar þann fús sem tregur,
hvort fellur létt eða þungt.

Hvorki fyr'ir hefð né valdi
hopar dauðinn eitt strik,
fæst sízt með fögru gjaldi
frestur um augnablik,
allt hann að einu gildir,
þótt illa líki' eða vel,
bón ei né bræði mildir
hans beiska heiftarþel.

Menn vaða' í villu og svíma,
veit enginn neitt um það,
hvernig, á hverjum tíma
eða hvar hann kemur að.
Einn vegur öllum greiðir
inngang í heimsins rann,
margbreyttar líst mér leiðir
liggi þó út þaðan.

Afl dauðans eins nam krenkja
alla í veröld hér.
Skal ég þá þurfa að þenkja,
hann þyrmi einum mér?
Adams er eðli runnið
í mitt náttúrlegt hold,
ég hef þar og til unnið
aftur að verða mold.

Hvorki með hefð né ráni
hér þetta líf ég fann,
sálin er svo sem að láni
samtengd við líkamann.
Í Herrans höndum stendur
að heimta sitt af mér,
dauðinn má segjast sendur
að sækja, hvað skaparans er.

Nú vel, í Herrans nafni,
fyrst nauðsyn ber til slík,
ég er ei þeirra jafni,
sem jörðin geymir nú lík.
Hvenær sem kallið kemur,
kaupir sig enginn frí,
Þar læt ég nótt, sem nemur,
neitt skal ei kvíða því.

Ég veit, minn ljúfur lifir
lausnarinn himnum á,
hann ræður öllu yfir,
einn heitir Jesús sá,
sigrarinn dauðans sanni
sjálfur á krossi dó
og mér svo aumum manni
eilíft líf víst til bjó.

Með sínum dauða' hann deyddi
dauðann og sigur vann,
makt hans og afli eyddi,
ekkert mig skaða kann,
þó leggist lík í jörðu,
lifir mín sála frí,
hún mætir aldrei hörðu
himneskri sælu í.

Jesús er mér í minni,
mig á hans vald ég gef,
hvort ég er úti' eða inni,
eins þá ég vaki' og sef.
Hann er mín hjálp og hreysti,
hann er mitt rétta líf,
honum af hjarta' eg treysti,
hann mýkir dauðans kíf.

Ég lifi' í Jesú nafni,
í Jesú nafni' eg dey,
þó heilsa' og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti' eg segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.

Hallgrímur Pétursson
Hans Tomissöns sb., 1569

Kveðja, Helga Dögg
B.Ed, M.Ed og sjúkraliði


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2010 12:40:58 / formannslif

Bjarni Ben. og horki

                                           Ekki er allt gull sem glóir

Hroki kemur sjaldnast að gagni, hver sem á í hlut. Að svara fólki eins og það hafi ekki vit á hlutunum og eigi ekki að skipta sér af málefnum er hroki. Það hef ég fundið á eigin skinni og eflaust margir. Bjarni Ben. formaður Sjálfstæðisflokksins gekk aðeins of langt og langar mig að benda á skrif Láru Hönnu...http://blog.eyjan.is/larahanna/

Lára Hanna segir í bloggfærslu sinni ,,Viðhorf fyrirlitningar og hroka sem íslensk þjóð hefur þurft að búa við um áratugaskeið og kærir sig ekki um lengur. Þetta er liðin tíð, Bjarni. Stjórnmál og tilsvör fortíðar sem fólk sættir sig ekki við. Ekki var vitað um hinar háu fégjafir til einstakra stjórnmálamanna fyrir síðustu kosningar til Alþingis og það er argasti ruddaskapur að segja kjósendum að þeir geti bara beðið þar til í næstu kosningum eftir að segja skoðun sína á spillingunni með atkvæði sínu".

Lesið endilega pistilinn hennar.

Með kveðju,
Helga Dögg
B.Ed og M.Ed

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2010 10:42:44 / formannslif

Hjal

                                         Hvers virði er allt heimsins hjal 

Hvað gerir þú við tímann?
Ég lifi góðu lífi, sagði fiskimaðurinn. Ég sef frameftir á morgnana, fiska
dálítið, leik mér við börnin mín, tek ,,siesta" með konunni, rölti niður í
þorpið á kvöldin og fæ mér vínglas og leik á gítar með vinum mínum.

Ég get gefið þér góð ráð sagði Reykvíkingurinn.

Ég er ráðgjafi með MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Þú átt að veiða meira. Þá færð þú meiri afla og getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn meira. Síðan getur þú keypt heilan flota af bátum og þá ertu ekki lengur háður því að selja í gegnum milliliði en getur verslað beint við verksmiðjurnar, sett upp verksmiðjur og janfvel ráðið markaðnum. Þá þarftu ekki lengur að búa hér heldur getur flutt suður.

Hvað tekur þetta langan tíma spurði fiskimaðurinn. Svona 20 -25 ár. En hvað svo spurði fiskimaðurinn.

Þá kemur stóra stundin, sjáðu til. Þú breytir fyrirtækinu í hlutafélag og ferð á verðbréfamarkað og selur og stendur uppi með marga milljarða.
Já, sagði fiskimaðurinn en hvað svo?


Reykvíkingurinn varð dálítið hugsi en sagði síðan: Þá flytur þú í lítið fiskiþorp, sefur frameftir á morgnana, fiskar dálítið, leikur við börnin, tekur ,,siesta" með konunni, röltir á kvöldin niður í þorpið og færð þér vínglas og leikur á gítar með vinum þínum.

 

       Sjúkraliðihttp://markadssyn.is/dl/sjukralidi,%20loka%20utgafa.pdf

Færslur verða stopular ef einhverjar fram til 7. júní.

Kveðja,
Helga Dögg
B.Ed og M.Ed.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2010 17:53:44 / formannslif

Sjúkraliði

               Sjúkraliði; http://markadssyn.is/dl/sjukralidi,%20loka%20utgafa.pdf

Í þá gömlu góðu daga óskuðu menn hvorir öðrum gleðilegrar hátíðar þegar kosningar voru. Þessi siður er nánast horfinn úr menningu landans. Öldungar landsins viðhalda honum kannski.

Kveðja,
Helga Dögg
B.Ed og M.Ed.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.05.2010 22:23:07 / formannslif

Steinunn Valdís

                            Ekki er svo með öllu ill að ekki boði eitthvað gott

Nú hefur Steinunn Valdís sagt af sér þingmennsku. Það undrar mig að hún skuli ekki hafa horft fram á veginn þegar hún þáði styrkina. Maður getur verið vitur eftir á. Það má velta því upp af hverju hver konan á fætur annarri biðst afsökunar, fer í frí eða segir af sér á meðan karlpeningurinn situr eins og límdur í stóla sína. Hvurslags er þetta eiginlega. Tímabært að karlarnir skoði mál sín, sama hvar þeir eru í stjórnmálunum. Sjá frétt um Steinunni Valdísi;  http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/05/27/fekk_12_7_milljonir_i_styrki/

Ef spár ganga eftir verða breytingar á pólítísku landslagi hér á Akureyri eins og víða annars staðar. Skilaboð frá kjósendum, ekki hægt að túlka það öðru vísi. Spennandi kosningakvöld framundan.

Sjúkraliði; http://markadssyn.is/dl/sjukralidi,%20loka%20utgafa.pdf

Kveðja,
Helga Dögg Sverrisdóttir,
B.Ed, M.Ed og nemi í HA.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2010 12:07:27 / formannslif

Aldraðir

      Hættu aldrei að leita og ögra. Uppgötvaðu hvað þú vilt gera og gerðu það vel.

Í gær kynnti meistaranemi verkefnið sitt í Heilbrigisvísindadeild HA. Um eigindlega rannsókn var að ræða, úrtak lítið og rýnihópar notaðir. Verið var að skoða siðferðileg réttindi aldraðra sem tengjast híbýlum og heimilum.

Helstur niðurstöður er að aldraðir vilja hafa rétt til að:
-ráða sínum málum varðandi heimili sitt
-komast á hjúkrunarheimili þegar þörf krefur
-hjúkrunarheimilið sé heimili þeirra
-ráða einhverju um daglegt líf
-haft sé samráð við þá um flutning

Spurningar voru leyfðar í lok fyrirlesturs og komu margs konar vangaveltur upp. Meðal annars hvort réttur aldraðar eins og þeir skilgreina hann í rannsókninni fari saman við stefnu stjórnvalda í málefnum aldraðra. Máefni fatlaðra kom einnig til umtals, hvernig málaflokknum er háttað. Lög um heilbrigðisstéttir hefta að vissu leyti aldraða að nota þjónustu sem á að vera sjálfsögð, svo og sveitarfélög og ríki að bjóða vegna karps fagstétta og múra sem eru á milli þeirra.

Kveðja,
Helga Dögg Sverrisdóttir,
M.Ed og nemi í HA.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2010 13:11:24 / formannslif

Meinloka

                                   Betur heima setið en af stað farið

Það færist í vöxt að frambjóðendur stjórnmálaflokkana noti rafræna miðla til að koma málefnum sínum á framfæri. Ég rakst á einræðu frá Bjarna Karlssyni sem er áhugaverð í alla staði...hlustið; http://www.youtube.com/watch?v=rOwZkGNjxSY

Að mínu mati eiga þessi orð Bjarna ekki eingöngu við málefni stjórnmálanna, heldur og allt sem manneskjan tekur sér fyrir hendur í lífinu. Hann minnir okkur á, að margt sé gerlegt þó í upphafi bendi ekki allt til þess.

Kveðja,
Helga Dögg Sverrisdóttir,
M.Ed og nemi í HA.

Sjúkraliði;http://markadssyn.is/dl/sjukralidi,%20loka%20utgafa.pdf

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2010 20:13:46 / formannslif

Rúm öld

                                                 Ekki er allt sem sýnist

,,Blekkingum var beitt, er beitt og verður beitt áfram verði ekkert að gert. Ég ætla bara rétt að vona að blaðamenn eins og Björn Þór Sigurbjörnsson vinni heimavinnuna sína betur og segi sannleikann, umbúðalausan. Og hann má ekki vera svo bláeygur að halda, að orkuverð verði aðeins hækkað til álvera – sem er ekkert víst að sé yfir höfuð hægt þar sem orkuverðið til þeirra er bundið í langtímasamninga sem ef til vill er ekki hægt að rifta. Björn Þór segir að viðbrögð nokkurra stjórnmálamanna hafi verið ofsafengin. En hefur hann ekki hlustað á viðbrögð almennings? Fólksins í öllum flokkum eða utan flokka sem er brjálað vegna þessarar framvindu mála og vill ekki sjá einkavæðinguna – erlenda eða innlenda". Svo skrifar Lára Hanna...http://blog.eyjan.is/larahanna/

Kveðja,
Helga Dögg Sverrisdóttir,
M.Ed og nemi í HA.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 34
RSS tengill